Vörulýsing
Eigðu gæðastund heima, dekraðu við þig og njóttu byltingar í naglameðferð þannig að neglurnar fái gel áferð. Einkaleyfisvarið UV-Gloss yfirlakkið viðheldur öndun og raka naglanna sem Nailberry er orðið þekkt fyrir og á sama tíma er sett nýtt viðmið fyrir yfirlökk.
Án 25 helstu eiturefnanna, vegan og ekki prófað á dýrum, þessi þróaða blanda þarf ekki útfjólubláa geisla eða LED ljós, þess í stað er notuð svokölluð “3D reactive” tækni til að herða lakkið með sólarljósi, sem býr til gríðarlega harða spegilslétta filmu yfir uppáhalds litinn þinn sem harðnar mjög hratt. Það sem Meira er, UV Gloss má auðveldlega hreinsa af með acetone-lausa Clean Nail Colour Remover – neglurnar þurfa ekki að liggja lengi í vökvanum bara þurrka yfir.
Um Nailberry
L’Oxygéné línan frá Nailberry, eru sannkölluð lúxus naglalökk. Þau hleypa í gegn raka og súrefni. Eru eiturefnalaus, VEGAN, næra, anda, endast og eru framúrskarandi smart. Fagfólkið keppist um á dásama Nailberry L’Oxygéné. Þau hafa hlotið hina kærkomnu vottun PETA “cruelty free”. L’Oxygéné eru án 12 skaðlegustu efnanna sem almennt er að finna í naglalökkum. Þau eru: Formaldehýð Túlín Kemísk kamfóra DPB (skaðleg þalöt) Formaldehýð kvoðu (resin), xylene, ethyl tosylamide, triphenyl phosphate, alkóhóls, parabena, dýraafurða & glútens (sem er ekki sjálfgefið). Nailberry L’Oxyéne henta því ekki bara flestum heldur öllum. Þar með talið óléttum konum, börnum og líka þorra þeirra sem þjást af allskyns ofnæmum. Þau sameina í senn fegurð og hreinleika og það ekkert gefið eftir þegar kemur að heilsusamlegum snyrtivörum. Neglurnar koma vel nærðar undan Nailberry L’Oxygén.
Notkunarleiðbeiningar
Hið fullkomna samspil.
Skref 1 – berðu á eina umferð af undirlakki Bare Essentials, The Cure, Strengthen & Breathe eða Acai Elixir.
Skref 2 – berðu á tvær umferðir af vel völdum lit af L’Oxygéné polish.
Skref 3 – þegar lakkið er orðið snertiþurt, renndu yfir með einni umferð af UV Gloss Top Coat, fylltu upp að brún hverrar naglar og láttu þorna mjög vel.
Hreinsun – berðu Clean Nail Colour Remover í bómullarskifu og þurrkaðu yfir neglurnar.
Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.