Vörulýsing
Varagloss í stiftformi með miklum glans og glitrandi áferð. Glossinn gefur vörunum raka og formúlan bráðnar við snertingu við varirnar. Glossinn er með létta til miðlungs þekju og fellur fallega að náttúrulegum lit varanna.
Glossnum er smellt upp til að fá vöruna fram, svo ekki þarf að skrúfa hann upp. Hægt er að nota glossinn einan og sér, með varablýanti eða yfir varalit.
Við fyrstu notkun: Smellið nokkrum sinnum þar til varan kemur upp í stiftinu.
Við hverja notkun: Varan smellist upp en ekki er hægt að færa hana aftur niður, svo smellið aðeins upp því magni sem þið ætlið að nota.
Meiri glans: Berið fleiri umferðir á varirnar til að byggja upp meiri glans og glitrandi áferð.












Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.