Vörulýsing
Losaðu um streitu og vöðvaspennu í hálsi og herðum með afslappandi rafvöðvaörvun og mildum, róandi hita. Neck & Shoulder Massager er auðvelt að setja á sig, það situr þétt um hálsinn og skilur hendurnar eftir frjálsar, þú getur verið með það á þér á meðan þú slakar á, horfir á sjónvarpið eða situr við skrifborðið.
Tækið er alveg hljóðlaust og létt og hannað með það að leiðarljósi til að vinna á streitu og óþægindum á mildan og einfaldan hátt.
Veldu úr sex prógrömmum með 16 styrkstigum og þremur hitastillingum og sníddu nuddið nákvæmlega að þínum þörfum. Tækið er USB-endurhlaðanlegt, fullhleðsla tekur tvær klukkustundir og dugar í fimm daga á fullum krafti (miðað við notkun tvisvar á dag).
Kostir:
– Losaðu um streitu og vöðvaspennu í hálsi og herðum með afslappandi. rafvöðvaörvun og mildum, róandi hita.
– Auðvelt að setja á sig og skilur hendurnar eftir frjálsar.
Eiginleikar:
– EMS (rafvöðvaörvun).
– Róandi hiti frá 38 °C upp í 48 °C í þremur hitastillingum.
– Talleiðbeiningar.
– Sex prógrömm að velja úr.
– 16 styrkstig.
– USB-endurhlaðanlegt.
Innihald:
– Höfuð- og hálsnuddtæki
– USB-hleðslusnúra
Prógrömm
– Nuddprógramm 1: 15 mínútna lota þar sem skipt er um nuddhreyfingu á 60 sekúndna fresti
– Nuddprógramm 2: Önnur 15 mínútna lota þar sem nuddið breytist á 60 sekúndna fresti.
– Nuddprógramm 3: Djúpt rúllunudd – kröftugt nudd sem mýkir auma og stífa vöðva
– Nuddprógramm 4: Milt nudd – mjúk hnoðhreyfing.
– Nuddprógramm 5: Púlsnudd – taktfastir púlsar sem losa um streitu og spennu.
– Nuddprógramm 6: Bankandi nudd – breytileg bankhreyfing
Myndband:































Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.