Vörulýsing
Nýtt tímabil, nýr litur. A New Leaf er mildur grænn tónn með haustlegum blæ sem færir hversdagsútlitinu ferskleika og ró. Liturinn er látlaus en um leið eftirtektarverður. Fágaður kostur fyrir þau sem vilja prófa eitthvað annað en hefðbundna hlutlausa tóna. A New Leaf er litur sem fer vel við hlýjar haustflíkur, en nýtur sín líka einn og sér. Lítið smáatriði sem gefur stílnum nýtt líf. Nailberry L’Oxygéné eru lúxusnaglalökk sem hleypa raka og súrefni í gegn. Þau eru vegan, endingargóð og PETA-vottuð sem cruelty-free. Lökkin eru 21-free, eða án 21 skaðlegs efnis sem getur verið að finna í naglalökkum. Fallegir litir og mild formúla fara hér saman.
Notkunarleiðbeiningar
Einföld ráð til að láta naglalakkið endast 1 – Þvo á sér hendurnar, setja spritt eða naglalakkahreinsir í bómull og strjúka af nöglinni til þess að hreinsa í burt alla fitu og óhreinindi. 2 – Lagfæra lengdina á nöglunum ásamt ójöfnum, setja þunna umferð af undirlakki eða næringu sem fyrstu umferð 3 – 2 þunnar umferðir af Nailberry naglalakki 4 – Setja yfirlakk sem gæti verið Fast dry gloss eða Shine & Breathe.















Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.