Skilmálar Beautybox
Með því að leggja inn pöntun hjá Beautybox samþykkir kaupandi eftirfarandi skilmála. Ef eitthvað er óljóst, sendið fyrirspurn á beautybox@beautybox.is.
Beautybox er rekið af Tribus ehf, kt. 520916-0400
Greiðsla:
Kaupandi getur innt greiðslu af hendi með kreditkorti, debetkorti, Pei, Netgíró eða millifærslu.
Kortafærslur fara í gegnum örugga greiðslusíðu Borgunar.
Sé greiðsla gerð með millifærslu skal leggja inn á reikning hjá Tribus ehf innan 3 tíma frá kaupum. Hafi greiðsla ekki borist innan þess tíma fer vara / vörur aftur í sölu.
Reikningsnúmer: 0133-26-060400
Kennitala: 520916-0400
Afhending vöru:
Allar upplýsingar um afhendingu pantana eru að finna í greiðsluferlinu og geta sendingar valmöguleikarnir geta breyst án fyrirvara.
Beautybox tekur ekki ábyrgð á að viðskiptavinir gefi upp rétt póstfang eða símanúmer eða séu með rétt merkta póstkassa eða póstlúgur.
Vöruskil:
Kaupandi hefur 14 daga frá móttöku vöru til að hætta við kaupin að því tilskildu að hann hafi ekki notað vöruna, henni sé skilað í óuppteknum og upprunalegum umbúðum. Ef vara er innsigluð má ekki rjúfa innsiglið. Kvittun fyrir vörukaupum þarf að fylgja. Að ofangreindum skilyrðum uppfylltum og eftir að varan er móttekin, er gengið frá endurgreiðslu. Sendingarkostnaður er ekki endurgreiddur.
Vöruskil fara fram í verslun okkar í Síðumúla 22. Ef varan var pöntuð með sendingu þá er hægt að skila með því að senda vöruna til baka á:
Tribus ehf
Pósthólf 9393
129 Reykjavík
Þegar varan hefur verið móttekin er gengið frá endurgreiðslu.
ATH Beautyboxið er eina undantekningn á skilareglunni þar sem að vörurnar í boxinu eru ekki innsiglaðar og af hreinlætis ástæðum er ekki hægt að skila því.
Vöruverð:
Öll vöruverð eru birt með fyrirvara um prentvillur og áskilum við okkur rétt til að hætta við viðskipti hafi rangt verð verið gefið upp.
Vinsamlega athugið að vöruverð getur breyst án fyrirvara.
Innihaldslýsingar, myndir og aðrar upplýsingar:
Allar upplýsingar á síðunni eru birtar með fyrirvara um mögulegar prentvillur og myndbrengl. Við hvetjum viðskiptavini til að lesa um innihaldsefni á umbúðum áður en þær eru notaðar.
Trúnaður:
Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar þær upplýsingar sem kaupandi gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar verða ekki afhentar þriðja aðila undir neinum kringumstæðum.
Annað:
Afsláttarkóðar gilda aldrei á vörur á útsölu eða vörur sem eru nú þegar á afslætti, nema annað sé tekið fram.
Með því að skrá þig á póstlista Beautybox samþykkir þú að fá sendar upplýsingar um nýjar vörur og tilboð. Netföngin eru trúnaðarupplýsingar og eru undir engum kringumstæðum afhent þriðja aðila. Óski viðskiptavinur eftir að vera tekinn af póstlista skal fylgja leiðbeiningunum neðst í emailinu eða senda email á beautybox@beautybox.is.
Beautybox áskilur sér rétt til að breyta skilmálum þessum hvenær sem er. www.beautybox.is.