Vörulýsing
Hýalúronsýru brúnkusprey – fyrsta brúnkuspreyið sem inniheldur þriðju kynslóðar hýalúronsýru sem hjálpar húðfrumum þínum að drekka í sig og viðhalda raka, viðheldur þéttleika og teygjanleika og stuðlar að heilbrigði húðar. Hyaluronic spreyið er rakagefandi og mýkjandi og gefur fallegan ljóma.
Hýalúronsýru brúnkuspreyið örvar kollagen framleiðslu húðar sem gerir hana frísklega og sléttari. Nærandi og mjúk formúla án alkohóls sem inniheldur Arlasolve™ sem gerir það að verkum að spreyið dreifist vel, þornar hratt og aðlagast fallega að þínum náttúrulega húðlit. Einn brúsi dugir í allt að 30 skipti á andlit og allt að 5 skipti á allan líkamann. Falleg brúnka á innan við mínútu sem endist í allt að 9 daga. Hentar öllum húðgerðum og passar í handfarangur! Hýalúronsýru spreyið gerir húðina ekki appelsínugula. Ilmurinn er sætur með blóma- og amber nótum.
- Án parabena og sílíkona.
- Prófað af húðlæknum.
- Vegan og náttúruleg innihaldsefni.
- Eco-friendly brúsinn er að fullu endurvinnanlegur.
Notkunarleiðbeiningar
- Spreyið ca. 30cm frá húð
- Notið stuttar, hraðar hreyfingar – ekki hægar, s-laga hreyfingar
- Þornar á 10-15 mínútum
- Hægt að nota hárblásara til að hraða þornun
- Eftir 3 klukkutíma er spreyið að fullu þornað og hægt að æfa, fara í sturtu, etc.
Um merkið
MARC INBANE er hágæða hollenskt snyrtivörumerki sem framleiðir lúxus húðvörur með áherslu á brúnkuvörur og eru þau frumkvöðlar á sínu sviði.
Hrein innihaldsefni, faglegt handverk, fáguð útlitshönnun og fagmennska í öllu framleiðsluferlinu setur MARC INBANE í leiðandi stöðu í framleiðslu á hágæða snyrtivörum.
Stöðugur vilji okkar hjá MARC INBANE til að betrumbæta og þróa afurðir okkar gerir okkur kleift að vera í fremstu línu við að kynna nýjustu framfarir í heimi brúnkunnar. Vegna þessa hafa vörur okkar unnið til verðlauna um allan heim.
Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.