Vörulýsing
The Concentrate Serum er áhrifaríkt serum sem hjálpar til við að koma jafnvægi á húðina, styrkja hana og róa. Á hverjum degi verður húðin fyrir umhverfisáhrifum, svo sem mengun, sem geta valdið bólgum – einni helstu orsök ótímabærra öldrunareinkenna húðarinnar. The Concentrate hjálpar til við að byggja upp varnarlag húðarinnar og inniheldur öflug andoxunarefni sem styrkja húðina gegn daglegum orsökum ertingar. Miracle Broth™ í þéttri formúlu – einstaklega öflug útgáfa af áhrifaríkum elixír La Mer – hjálpar seruminu að draga úr sýnilegum einkennum bólgu og róa húðina svo hún geti einbeitt sér að náttúrulegri endurnýjun. Við daglega notkun verður húðin sterkari*, stöðugri og sýnilega róaðri.
*Eftir aðeins 14 daga var náttúrulegt varnarlag húðarinnar orðið marktækt sterkara (klínískar niðurstöður á 23 konum).
Notkunarleiðbeiningar
Notið ásetjarann til að setja lítið magn á fingurgómana. Þrýstið vörunni létt á húðina og nuddið seruminu inn í hana að minnsta kosti tvisvar á dag eða eftir þörfum. Berið því næst La Mer rakakrem á húðina.
























Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.