Vildarkerfi Beautybox
Beautylistinn
Safnaðu Beautykrónum með hverjum kaupum og nýttu þær sem afslátt þegar þér hentar.
Ein Beautykróna jafngildir einni ISK í afslátt. Ertu nú þegar með aðgang á beautybox.is? Þá ert þú nú þegar á listanum og getur byrjað að safna.
Þú átt
1.240
Beautykrónur = 1.240 ISK í afslátt
Dæmi um stöðu á Mín síða
4 kr.
fyrir hverjar 100 kr. sem þú verslar á fullu verði
2 kr.
fyrir hverjar 100 kr. sem þú verslar á tilboði
1 = 1 ISK
1 Beautykróna = 1 ISK í afslátt
0 kr.
það kostar ekkert að vera á Beautylistanum
Svona virkar Beautylistinn
1
Passaðu að vera alltaf innskráð/ur þegar þú verslar
Í hverri vöru sérðu hvað hún gefur þér margar Beautykrónur.
2
Safnaðu
Beautykrónurnar bætast við á Mín síða þegar pöntunin þín hefur verið afgreidd.
3
Dekraðu við þig
Til að nota Beautykrónurnar þínar smellirðu á „Nota Beautykrónur“ í greiðsluferlinu. Þú ræður hversu mörgum Beautykrónum þú eyðir í hvert skipti.
Fleiri leiðir til að safna
Þú þarft ekki að versla til að safna. Þessar Beautykrónur bíða þín.
Afmælisgjöf
500 Beautykrónur
Skráðu afmælisdaginn þinn á Mín síða og fáðu 500 Beautykrónur í afmælisgjöf á hverju ári.
Deildu Beautylistanum
500 Beautykrónur
Deildu Beautylistanum með vinkonum og vinum. Fyrir hvern nýskráðan vin sem verslar í gegnum hlekkinn þinn færð þú 500 Beautykrónur.
Þín upplifun hjálpar öðrum
50 Beautykrónur fyrir umsögn
Skrifaðu umsögn og fáðu 50 Beautykrónur fyrir hverja umsögn. Einungis er hægt að skrifa umsögn um vörur sem þú hefur áður keypt hjá Beautybox.
Spurt og svarað
Finnurðu ekki svarið? Skoðaðu skilmála Beautylistans. Ef svarið er ekki þar heldur, sendu okkur línu á beautybox@beautybox.is eða hringdu í 547-0700.
Þarf ég að skrá mig sérstaklega?
Allir sem eru nú þegar með aðgang á beautybox.is eru sjálfkrafa skráðir á Beautylistann. Ef þú ert ekki með aðgang tekur aðeins nokkrar sekúndur að skrá sig.
Hvar sé ég Beautykrónurnar mínar?
Á Mín síða → Beautylistinn. Þar sérðu stöðuna, söguna og meðmælahlekkinn þinn.
Hvenær fæ ég Beautykrónurnar?
Þær bætast við þegar pöntunin þín hefur verið afgreidd. Mundu að vera innskráð/ur þegar þú verslar, annars safnast þær ekki.
Safna ég Beautykrónum af tilboðsvörum?
Já. Af vörum á tilboði eða útsölu færðu 2 Beautykrónur fyrir hverjar 100 kr. í stað 4.
Get ég notað Beautykrónur á tilboðsvörur?
Já, Beautykrónurnar má nota á allar vörur, líka þær sem eru á tilboði.
Get ég notað Beautykrónur og afsláttarkóða saman?
Já. Beautykrónurnar reiknast þá af verðinu eftir afslátt kóðans.
Safnast Beautykrónur af sendingarkostnaði?
Nei, aðeins af vörum.
Renna Beautykrónurnar út?
Þær gilda í 12 mánuði. Tveimur vikum áður en þær renna út færðu tölvupóst sem minnir þig á að nota þær í tæka tíð.
Hvað gerist ef ég skila vöru?
Beautykrónurnar sem fengust fyrir vöruna eru dregnar frá. Ef þú notaðir Beautykrónur í pöntuninni færðu þær aftur.
Get ég gefið öðrum Beautykrónurnar mínar?
Nei, Beautykrónurnar eru persónubundnar. Þær verða ekki fluttar á annan aðgang né greiddar út í peningum.
Má ég eiga fleiri en einn aðgang?
Nei, hver og einn má eiga einn aðgang á Beautylistanum.
Get ég hætt á Beautylistanum?
Já, hvenær sem er. Hafðu samband við okkur eða eyddu aðganginum þínum. Ónotaðar Beautykrónur falla þá niður.
Þorðu að vera þú. Við sjáum um restina.
Skráðu þig inn og byrjaðu að safna í dag.
Nánar í skilmálum Beautylistans.
