BEautybox - nýr kafli
Það eru spennandi tímar fram undan hjá Beautybox og nú langar okkur að deila með ykkur stórum fréttum!
Við höfum ákveðið að loka versluninni okkar í Síðumúlanum að svo stöddu og einbeita okkur alfarið að netverslun Beautybox.is! Þetta er stór ákvörðun, en fyrst og fremst ákvörðun sem við tökum með mikilli tilhlökkun og trú á framtíðina. Þegar Beautybox.is fór í loftið árið 2017 var markmiðið að byggja upp frábæra snyrtivöruverslun á netinu, með spennandi vöruúrvali, framúrskarandi þjónustu og viðskiptavininn alltaf í fyrsta sæti.
Síðan þá hefur ótrúlega margt gerst! Við höfum vaxið, opnað verslun, flutt í stærra húsnæði og kynnst ótal yndislegum viðskiptavinum. Við erum ótrúlega þakklát fyrir þessi ár, alla reynsluna og þau dýrmætu tengsl sem hafa myndast.
En nú er kominn tími á næsta kafla!
Í dag fer um 70% af allri sölu Beautybox fram í gegnum netverslunina og þar sjáum við okkar helstu styrkleika og stærstu tækifæri til framtíðar. Hugmyndirnar um hvernig við getum gert netverslunina enn betri, þjónustuna öflugri og upplifunina skemmtilegri hafa lengi verið fleiri en við höfum haft tíma til að framkvæma og nú ætlum við að breyta því! Við ætlum að beina allri okkar orku að því sem við gerum best og gera það enn betur.
Við munum sakna þess að hitta ykkur í versluninni og við vitum að mörg ykkar munu sakna þess að koma til okkar. En þótt við lokum dyrunum í Síðumúla breytist ekki það sem Beautybox stendur fyrir: Persónuleg þjónusta, þekking og fræðsla valdefling og vellíðan viðskiptavina verða áfram í hjarta alls sem við gerum.
Og við erum þegar byrjuð að undirbúa næsta kafla!
Á næstu dögum kynnum við BEAUTYLISTANN, nýja vildarkerfið okkar þar sem þið getið safnað punktum og notið ýmissa fríðinda. Þetta er aðeins fyrsta skrefið af mörgum spennandi nýjungum sem við hlökkum til að deila með ykkur!
Síðasti opnunardagur verslunarinnar verður fimmtudagurinn 26. nóvember og þann dag bjóðum við 20% afslátt af öllu í versluninni. Á föstudaginn hefjast svo Bjartir Dagar á Beautybox.is með spennandi tilboðum!
Beautybox byrjaði á netinu, blómstraði á netinu og snýr nú aftur að rótunum, reynslunni ríkari og með ótal hugmyndir um framtíðina.
Takk fyrir að vera hluti af ferðalaginu okkar. Við hlökkum til að halda áfram að veita ykkur þá persónulegu þjónustu sem þið þekkið og taka ykkur með í allt það spennandi sem fram undan er.
Það eru bjartir tímar fram undan og við erum rétt að byrja! ❤️
Spurningar
Svo við getum lagt alla okkar orku í að gera netverslunina okkar ennþá betri. Þó svo við munum sakna þess gríðarlega að aðstoða ykkur líka í versluninni, þá höfum við ákveðið að einbeita okkur að þeim vettvangi þar sem við erum sterkust.
Húsaleigusamningurinn okkar rennur út í janúar og við þurfum smá tíma til að koma okkur fyrir 🙂 – við vitum að þetta er alveg agalegur tími til að loka versluninni en markmiðin eru stór og stundum þarf maður að fórna smá í dag til að vaxa á morgun.
Nei því miður verður ekki hægt að sækja pantanir til okkar. Aftur á móti erum við ekki að flytja alveg strax svo ef það er eitthvað þá verðum við ennþá hér í Síðumúlanum fram að áramótum og getum aðstoðað ykkur með ósóttar netpantanir.
Við erum að vinna í betra og skilvirkara kerfi til að skila og skipta pöntunum í gegnum netverslunina.
Við minnum einnig á að það er alltaf hægt að biðja um prufur hjá okkur í gegnum netverslunina.
Einnig erum við að skoða mismunandi möguleika í sambandi við afhendingarstaði.
Við ætlum að opna verslunina okkar tímabundið 4.-7. janúar til þess að taka á móti skilum og skiptum. Við vorum ekki búin að gera ráð fyrir að loka versluninni á þessum tíma og við viljum að sjálfsögðu koma til móts við alla og bjóða upp á þá þjónustu sem að þið gerðuð ráð fyrir að fá þegar jólagjafir voru keyptar.
Eftir 8. janúar lokar verslunin alveg og við flytjum okkur yfir í nýtt rými.
Við erum að vinna að enn einfaldara og skilvirkara ferli fyrir skil og skipti í netversluninni. Þangað til er þér alltaf velkomið að hafa samband við okkur og við leiðbeinum þér með næstu skref.
Þú getur að sjálfsögðu áfram leitað til okkar vegna vara sem þú hefur keypt hjá Beautybox. Hafðu samband við okkur með upplýsingar um vöruna og við aðstoðum þig við að finna lausn.
Ekkert mál – þó svo við séum formlega að loka þá erum við mestmegnis hér á svæðinu ennþá á virkum dögum. Endilega bankaðu bara á hurðina og við aðstoðum þig. Þú getur líka hringt á undan þér ef þú vilt vera alveg 100% viss um að við séum ekki í nýja rýminu okkar að koma okkur fyrir:).
Við gerum að sjálfsögðu okkar allra besta til að aðstoða þá sem eru í vandræðum og/eða eiga eftir að sækja pantanir frá 11.11 og gerðu ráð fyrir því að fá þjónustu við afhendingu. Aftur á móti verður ekki formlega opið í versluninni okkar frá og með föstudeginum 27. nóvember. Þó svo við séum á staðnum þá erum við á fullu að undirbúa næstu skref í flutningum og að gera netverslunina enn betri og flottari.
Við erum ekki að fara neitt !
Fyrir ráðgjöf á vörum er best að senda okkur skilaboð á samfélagsmiðlunum Facebook eða Instagram – þar er oftast best að spjalla og fá ráðgjöf. Þar getið þið líka sent okkur myndir og við getum sent ykkur linka og mælt með vörum.
Einnig er hægt að senda okkur tölvupóst á beautybox@beautybox.is
Og að sjálfsögðu hringja í síma: 547-0700 á milli 13-16 virka daga.
Við erum að skoða það að bjóða upp á að bóka símatíma fyrir ráðgjöf – meira um það síðar 🙂 eins og er mælum við með að hafa samband í gegnum samfélagsmiðlana.
Við mælum eindregið með því að nota síurnar á heimasíðunni til þess að finna vörur sem að henta þínum þörfum. Hvort sem þú ert að leita eftir vörum fyrir þurra húð, ilmvatni með vanillunótum eða ljómandi farða þá erum við að vinna í að gera heimasíðuna eins góða og hægt er.. Við erum enn að vinna í að fullkomna kerfið, það er ekki alveg tilbúið en við látum ykkur vita!
Ekki hika við að hafa samband – til þess erum við hér 🙂 engin spurning er of lítil eða asnaleg.
Endilega hafðu samband í gegnum Facebook eða Instagram. Sendu okkur mynd af innleggsnótunni og við breytum henni í gjafabréf í netversluninni 🙂 !
Já, að sjálfsögðu! Gjafabréfin okkar halda áfram að gilda og hægt verður að nota þau í netversluninni okkar. Ef þú þarft aðstoð við að nýta gjafabréfið þitt skaltu endilega hafa samband við okkur.
Öll uppáhalds merkin ykkar halda að sjálfsögðu áfram og nú erum við ekki lengur takmörkuð með hillupláss svo við höfum enn meiri möguleika á því að bæta við nýjum merkjum.
Við flytjum ekki formlega fyrr en eftir áramótin og stefnum á að það verði engin röskun á þjónustunni en ef svo verður þá látum við að sjálfsögðu vita. Markmiðið er frekar að veita enn hraðari þjónustu í gegnum netverslunina.
Frábær spurning – við erum að vinna í að finna út úr því hvernig við getum boðið upp á hann í netverslun. Til að byrja með mælum við með því að skrá ykkur á Beautylistann þegar hann verður kynntur.
Beautylistinn er nýja velvildarkerfið okkar þar sem þú safnar punktum sem þú getur svo nýtt sem inneign þegar þú verslar. Þeir sem eru á Beautylistanum koma líka til með að fá forskot á afslætti og sérsniðin tilboð!
