Vörulýsing
Upprunalega formúlan frá Skindinavia. Langvarandi og vatnsfráhrindandi setting-sprey sem inniheldur hámarksstyrk virkra innihaldsefna til að tryggja förðun sem endist í gegnum streitu, tár og gleði. Formúlan læsir förðuninni í allt að 16 klukkustundir, óháð aðstæðum.
All Day / All Night er fyrsta setting-sprey Skindinavia með einkaleyfisvarinni kælitækni (Patented Cooling Technology), sem hjálpar til við að kæla húðina og hægja á olíuframleiðslu hennar. Aukinn styrkur virkra efna veitir hámarksfestu og hjálpar förðuninni að haldast ferskri, sléttri og fallegri – frá „já, ég vil“ og fram á síðasta dans.
Olíulaust og létt setting-sprey sem andar vel og festir bæði fljótandi og púðurförðun með þyngdarlausri og þægilegri áferð. Formúlan hjálpar til við að verja förðunina gegn dofnun, línusöfnun, bráðnun og óæskilegum gljáa – hvar sem er og hvenær sem er.
• Cruelty-free & vegan
• Parabenalaus
• Ofnæmisprófaður
Notkunarleiðbeiningar
Hristu flöskunni vel áður en þú spreyjar til að virku efnin blandist rétt. Haltu úðanum í um 20–30 cm fjarlægð frá andlitinu. Lokaðu augunum og spreyjaðu yfir andlitið (eða 3–5 létt úðasprey). Ekki nudda eða blása. Láttu úðann þorna sjálfan til að festa förðunina sem best.















Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.