Lýsing
Öflugur, CGM samþykktur djúpnæringarmaski sem er hannaður sérstaklega fyrir liðað hár til að styrkja það innan frá.
Öflug rakagefandi meðferð fyrir sléttari, mýkri og þyngdarlausa liði. Inniheldur Shea smjör, kakó og lífræna kókosolíu. Hármaskinn leitar uppi og lagar þurrt, skemmt hár ásamt því að slétta úr úfnum lokkum og gera hárið viðráðanlegra. Þyngdarlausir, heilbrigðari liðir frá fyrstu notkun. Málamiðlunarlaus hárumhirða fyrir krullur. 100% Curly Girl samþykkt, vegan og snýst um raka.
Inniheldur Shea smjör, kakó og lífræna kókosolíu til þess að ýta undir og móta náttúrulega liði. Við vitum að krullað og liðað hár getur verið þurrara og viðkvæmara en aðrar hártýpur, þess vegna er raki aðalatriðið í For The Love Of Curls línunni. Þú finnur aldrei olíubyggð sílíkon, súlföt (SLS & SLES), þurrkandi alkóhól, steinefnaolíur eða steinefnavax í formúlunum okkar. Rakagefandi krullumaskinn okkar er blandaður úr náttúrulegu, sjálfbæru, nærandi og styrkjandi innihaldi sem liðirnir þínir eiga eftir að elska.
Notkunarleiðbeiningar
Settu vel af djúpnæringunni í rakt hár eftir þvott. Hafðu næringuna í hárinu í 5-10 mínútur og skolaðu vel úr. Notaðu næringu eftir á til þess að loka hárinu. Ráð frá Lee:„Til þess að vera viss um að djúpnæringin smjúgi vel inn hárið, þá er best að þurrka það með handklæði eftir þvott áður en þú setur djúpnæringuna í.“
Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.