Lýsing
Lash Illusion augnhárin eru með sérstaklega þunnu og sveigjanlegu bandi, sem er ósýnilegt þegar augnhárin eru notuð. Sérstök nano band tækni gerir bandið svo þunnt og mjúkt að þú finnur ekkert fyrir bandinu. Hefðbundin þykkt á bandi augnhára er 0,14mm, en með nano band tækninni hefur tekist að gera bandið 0,08mm á þykkt.
Augnhárin sjálf eru úr Luxe þráðum sem líkja eftir mink augnhárum en eru úr synthethic þráðum svo þau eru bæði vegan og cruelty free. Þræðirnir eru sérstaklega fínlegir og glansandi, og gefa glæsilegt útlit.
Augnhárin eru handgerð, og hægt að nota allt að 10 sinnum. Með í pakkanum fylgir latex frítt augnháralím.
Ásetning
Mátið augnhárin við augun og klippið þau til svo að þau passi umgjörð augna þinna. Klippið alltaf augnhárin frá ytri krók augnanna til þess að halda forminu réttu.
1. Berið lím á augnhárin.
2. Bíðið í 20-30 sek þar til að límið byrjar að þorna.
3. Með hjálp augnháratangarinnar frá Eylure : berið augnhárin upp við rót augnhára ykkar og leggið þau eins þétt upp við rótina og þið komist.
4. Lagfærið augnhárin svo að þau falli alveg að ykkar augnlokum.
Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.