Jóla Beautyboxið

Við viljum byrja á að nota tækifærið til að þakka ykkur innilega fyrir viðskiptin á árinu – þvílíkt sem við erum heppin með viðskiptavini og það er svo ótrúlega gaman að sjá ykkur loksins þegar þið komið að sækja pantanir til okkar. Verslunin okkar er aðeins á eftir áætlun, en við stefnum á almennilega opnun í janúar þrátt fyrir að það sé hægt að heimsækja okkur og versla á staðnum nú þegar.

En Jóla Beautyboxið 2019 kom út fyrir rúmri viku síðan og erum við svo ótrúlega stolt af því og spennt að segja ykkur frá og kenna ykkur á vörurnar. Að vana kemur blogg með hverri vöru á næstu viku og förum við einnig ýtarlega yfir þær í Instagram og Facebook story og mælum við því með að fylgjast vel með.

Í Jóla Beautyboxinu voru eftirfarandi vörur:

Estée Lauder Advanced Night Repair

Ójá! Lúxusprufa af mest selda serumi í HEIMINUM var í boxinu okkar og við gætum eiginlega ekki verið stoltari af því. En á hverri mínútu seljast 5 stk af Advanced Night Repair seruminu sem einnig hefur unnið til yfir 150 verðlauna, og segir það eiginlega allt sem segja þarf.

Advanced Night Repair serumið dregur úr ótímabærum einkennum öldrunar svo um munar og gefur húðinni ljóma, raka og yngra
yfirbragð.
Serumið inniheldur ChronoluxCB™ tækni sem er bæði fyrirbyggjandi og lagar öldrunareinkenni í húðinni. Í seruminu eru andoxunarefni og hýalúron sýra sem hámarka upptöku raka og þannig nær húðin í allan þann raka sem hún þarf yfir nóttina.
Fyrir þá sem vilja fræða sig betur um Serum þá mælum við með blogginu okkar hér: https://beautybox.is/hvad-er-serum-og-til-hvers-er-thad-notad/
Notkunarleiðbeiningar
Berið á hreina húð áður en rakakremið er notað. Notið nokkra dropa og berið mjúklega á andlit og háls að kvöldi til.

Mádara Daily Defence

Mádara vörurnar eru einstaklega dásamlegar lífrænar vörur sem eru lausar við skaðlaus innihaldsefni og er merkið einnig framúrskarandi umhverfisvænt og er túpan sem að kremið kemur í t.d. búið til úr plöntu plasti og er því 100% niðurbrjótanlegt í náttúrunni.

Í boxinu leyndist Daily Defense töfrakremið sem okkur finnst allt of fáir vita af. Kremið ver húðina þar sem loftslagið er þurrt og kalt og hentar á allan líkamann og fyrir allan aldur. Við mælum sérstaklega með því að nota það á og er það á þurrar varir, hendurnar, naglaböndin, þurra hæla, olnbogana.

Einnig er hægt nota kremið á alla fjölskylduna til að verja húðina gegn kulda og vindi, til dæmis ef farið er á skíði.
Notkunarleiðbeiningar
Berið á þurra húð hvar sem er á líkama og andliti

Nip+Fab Tan Booster

NIP+FAB hefur nýlega gefið út brúnkuvörur á mjög góðu verði og mælum við með því að þið kynnið ykkur þær hjá okkur – https://beautybox.is/nipfab/

En Tan Boosterinn er alveg ótrúlega sniðug vara þar sem þú getur stjórnað því svolítið hversu mikla brúnku þú færð úr henni og það strax.

Boosterinn er ætlaður fyrir andlit, háls og bringu og má nota hann einan og sér eða blanda honum í serum, rakakrem eða farða.
Hann er rakagefandi þökk sé E vítamíni en inniheldur einnig glýkólsýru sem fjarlægir dauðar húðfrumur og tryggir fallega og jafna brúnku.
Notkunarleiðbeiningar
Borðið beint á andlit, háls og bringu fyrir fallegan lit.
Bronzing Boosterinn er frekar litsterkur og ef þú vilt aðeins léttan lit mælum við með því að blanda honum útí serum, krem eða farða fyrir léttari lit.

Becca Glow Gloss í litnum Rose Gold

Við elskum BECCA og við vitum að þið gerið það líka og þess vegna finnst okkur alltaf jafn gaman að hafa vöru frá þeim í boxinu okkar. Glow Gloss er æðislegur gloss sem er ekki bara fallegur heldur nærandi líka.

Liturinn Rose Gold er líka ótrúlega hátíðlegur og þrátt fyrir að við viðurkennum að við höfðum smá efasemdir um litinn til að byrja með þá er hann einfaldlega frábær. Hann fer einhvernvegin öllum að okkar mati. Einnig er hægt að nota hann yfir varaliti,  mælum með rauðum, til þess að fá fallegan ljómandi blæ yfir varirnar.

Glow Glossarnir koma í 10 fallegum litum.

Notkunarleiðbeiningar
Hægt er að nota glossinn einan og sér eða yfir varalit.

STylPro Bursti

Glimmer bursti úr burstasetti frá StylPro. Burstasettið inniheldur 8 fallega mjúka og þétta bursta fyrir andlitið og augun. Burstarnir eru úr hágæða gervihárum og eru vegan.
Í boxinu var 1 af eftirfarandi 8 burstum 🙂
G103  Stór bursti fyrir púður og/eða sólarpúður
G104  Þéttur flatur bursti til að bera á og blanda farða á húðinni.
G105 Þéttur flatur bursti með stuttum hárum til að skyggja andlitið með eða nota í farða.
G106  Flatur bursti fyrir hyljara eða varalit.
G107 Langur og dúnkenndur augnskugga blöndunarbursti.
G108 Stuttur og þéttur bursti til að pakka augnskugga á augun eða nota í hyljara.
G109 Stuttur og breiður bursti til að blanda augnskugga eða eyeliner þétt upp við augnháralínuna bæði uppi og niðri.
G110 Flatur og skáskorinn bursti til að móta augabrúnirnar eða bera á eyeliner.

Að sjálfsögðu leyndist svo súkkulaði í boxinu Lindt súkkulaði kúla eins og hefur verið í öllum Jóla Beautyboxunum okkar.

Við vonum innilega að þið hafið verið ánægð með Jóla Beautyboxið ykkar 🙂 Næsta box kemur út í byrjun mars og verður það heldur betur spennandi 😉

Gleðileg Jól

2 thoughts on “Jóla Beautyboxið

  1. Asa sif Tryggvadottir says:

    Hæ hæ
    Ég finn ekki hvar ég get klikkað á til að kaupa jólaboxið er það uppselt

    • Beautybox.is says:

      Hæhæ já það seldist upp á rúmum 30 tímum 🙂 mæli með að vera á póstlistanum okkar til þess að missa ekki af næsta boxi sem kemur út í byrjun mars.

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *